Fyrirliði Leeds ekki með gegn Íslandi

Ethan Ampadu verður ekki með gegn Íslandi.
Ethan Ampadu verður ekki með gegn Íslandi. Ljósmynd/Leeds United

Velski knattspyrnumaðurinn Ethan Ampadu verður ekki með landsliði þjóðar sinnar gegn Íslandi í Þjóðadeildinni 11. október vegna meiðsla.

Ampadu meiddist á hné í fyrri hálfleik í 3:0-heimasigri Leeds á Coventry í ensku B-deildinni á laugardaginn og verður frá keppni í einhvern tíma vegna þeirra. Ekki er um slitið krossband að ræða.

Ísland á tvo heimaleiki í október en þremur dögum eftir leikinn við Wales mætast Ísland og Tyrkland á Laugardalsvelli.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert