Keyrðu yfir grannana í fyrri hálfleik

Evanilson skoraði fyrsta markið.
Evanilson skoraði fyrsta markið. AFP/Adrian Dennis

Bournemouth hafði betur gegn Southampton, 3:1, á heimavelli í grannaslag í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld.

Brasilíumaðurinn Evanilson kom Bournemouth yfir á 17.  mínútu og Dango Ouattara bætti við öðru markinu á 32. mínútu, áður en Antoine Semenyo fullkomnaði glæsilegan fyrri hálfleik Bournemouth með þriðja markinu á 39. mínútu.

Taylor Harwood-Bellis minnkaði muninn fyrir Southampton á 51. mínútu en nær komust gestirnir ekki.

Bournemouth er í 11. sæti deildarinnar með 8 stig. Southampton er í næstneðsta sæti með aðeins eitt stig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert