Sóknarmenn Liverpool fjarverandi

Diogo Jota var ekki með Liverpool.
Diogo Jota var ekki með Liverpool. AFP/Paul Ellis

Sóknarmennirnir Diogo Jota og Fedrico Chiesa voru hvorugir með á æfingu knattspyrnuliðsins Liverpool í dag. 

Enskir miðlar greina frá en Liverpool fær ítalska liðið Bologna í heimsókn í 2. umferð deildarkeppni Meistaradeildarinnar annað kvöld.

Jota lék allan leikinn en Chiesa sat allan tímann á bekk Liverpool í 2:1-sigri liðsins á Wolves í ensku úrvalsdeildinni um helgina. 

Hins vegar er Darwin Núnez mættur aftur til æfinga eftir að hafa misst af leiknum um helgina. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert