Leikmaður United loks að snúa aftur

Tyrell Malacia er loksins að snúa aftur.
Tyrell Malacia er loksins að snúa aftur. AFP/Oli Scarff

Hollenski knattspyrnumaðurinn Tyrell Malacia mun brátt snúa aftur á völlinn eftir langa fjarveru vegna meiðsla.

Hollenski miðilinn Voetbal International greinir frá að Malacia verði klár í slaginn í fyrsta lagi í lok mánaðar og í síðasta lagi í byrjun nóvember.

Malacia lék ekkert á síðustu leiktíð og hefur verið frá keppni frá því í maí á síðasta ári vegna erfiðra hnémeiðsla.

Hollendingurinn, sem er 25 ára gamall, hefur leikið 22 leiki með Manchester United í ensku úrvalsdeildinni. Hann kom til félagsins frá Feyenoord í heimalandinu fyrir tveimur árum.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert