Þjóðverjinn Thomas Tuchel er nýr þjálfari enska karlalandsliðsins í knattspyrnu en hann tekur við í janúar.
Hann hélt sinn fyrsta blaðamannafund í dag en knattspyrnusambandið þarlendis tilkynnti Þjóðverjann fyrr í dag.
Tuchel, sem hefur meðal annars stýrt Dortmund, Bayern München og Chelsea, var orðaður við Manchester United fyrr í haust.
Hann vildi hins vegar ekki tjá sig um þann áhuga.
Erik ten Hag, knattspyrnustjóri United-liðsins, er undir mikilli pressu eftir afleita byrjun á tímabilinu.