Slæmar fréttir fyrir ungstirni United

Kobbie Mainoo verður ekki með næstu vikurnar.
Kobbie Mainoo verður ekki með næstu vikurnar. AFP/Paul Ellis

Kobbie Mainoo, ungstirni enska knattspyrnuliðsins Manchester United, verður fjarverandi næstu vikurnar vegna meiðsla. 

Manchester United segir frá en Mainoo er algjör lykilmaður þrátt fyrir að vera aðeins 19 ára gamall. 

Þá er varnarmaðurinn og fyrrverandi fyrirliðinn Harry Maguire einnig meiddur og mun missa af næstu vikum. 

Manchester United fær Brentford í heimsókn í ensku úrvalsdeildinni á laugardaginn kemur. 

United hefur byrjað afleitlega á tímabilinu en liðið situr í 14. sæti með átta stig, tíu minna en topplið Liverpool. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert