Jamie Carragher, sparkspekingur og fyrrverandi knattspyrnumaður Liverpool og enska landsliðsins, fullyrðir að Mohamed Salah aðalstjarna Liverpool-liðsins muni skrifa undir nýjan samning hjá félaginu.
Salah, sem er 32 ára gamall, skoraði fyrra mark Liverpool og lagði seinna upp í sigri á Chelsea, 2:1, í ensku úrvalsdeildinni um helgina.
Hann er á lokaári samnings síns hjá félaginu líkt og fyrirliðinn Virgil van Dijk og Trent Alexander-Arnold.
Salah skoraði sitt 162. mark í deildinni um helgina og er aðeins 13 mörkum á eftir Thierry Henry sem er sjöundi markahæsti leikmaður í sögu ensku deildarinnar.
„Salah er með augun á Henry og Frank Lampard. Hann vill skora fleiri mörk en þeir. Það er ein stærsta ástæðan fyrir því að hann mun skrifa undir nýjan samning,“ sagði Carragher hjá SkySports.