Snyrtilegt sigurmark Liverpool (myndskeið)

Liverpool hafði betur gegn Chelsea, 2:1, í ensku úrvalsdeild karla í knattspyrnu á Anfield í gær. 

Liverpool er á toppnum með 21 stig eftir átta umferðir en Mohamed Salah kom Liverpool yfir með marki úr vítaspyrnu. 

Nicolas Jackson jafnaði metin fyrir Chelsea á 48. mínútu en aðeins þremur mínútum síðar kom Curtis Jones Liverpool yfir á nýjan leik með skemmtilegu marki sem reyndist sigurmarkið. 

Svipmyndir úr leiknum má sjá í spilaranum hér fyrir ofan en mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samvinnu við Símann Sport. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert