Óvíst er hvort Cole Palmer leikmaður Chelsea geti leikið stórleik liðsins gegn Arsenal í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta á sunnudag.
Palmer er að glíma við meiðsli sem hann varð fyrir í leik Chelsea gegn Manchester United síðastliðinn sunnudag.
Palmer varð fyrir hnémeiðslum þegar Lisandro Martínez, varnarmaður Manchester United, braut illa á honum undir lok leiks.
Martínez slapp með gult spjald spjald, þrátt fyrir að fara með takkana í hnéð á Englendingnum unga.
Palmer leikur ekki við Guðmund Þórarinsson og félaga í armenska liðinu Noah í Sambandsdeildinni annað kvöld og þá er leikurinn við Arsenal í mikilli óvissu hjá sóknarmanninum að sögn Sky Sports.