Manchester United sigraði Leicester, 3:0, í síðasta leik Ruud van Nistelrooy sem knattspyrnustjóri liðsins.
Fyrirliði United, Bruno Fernandes, skoraði fyrsta mark United eftir skemmtilega hælsendingu frá Amad Diallo.
Fernandes var nálægt því að skora aftur en varnarmaður Leicester, Viktor Kristiansen, komst fyrir tilraun hans en boltinn fór þá af Kristiansen og í markið.
Alejandro Garnacho skoraði svo þriðja mark United með glæsilegu skoti fyrir utan teig.
Mörkin og fleiri svipmyndir úr leiknum má sjá í spilaranum hér fyrir ofan. Mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samvinnu við Símann Sport.