Knattspyrnumarkvörðurinn fyrrverandi Hilário hefur sagt upp störfum hjá enska úrvalsdeildarfélaginu Chelsea.
Hilário, sem er 49 ára gamall, hefur verið markmannsþjálfari liðsins frá árinu 2014 en hann gekk til liðs við félagið árið 2006.
Hann hefur verið í herbúðum Chelsea samfleytt í 18 ár, fyrst sem leikmaður og svo sem þjálfari.
Hilário er að taka við markmannsþjálfun hjá enska landsliðinu en hann og Thomas Tuchel, sem var ráðinn þjálfari Englands á dögunum, þekkjast vel eftir að hafa unnið saman hjá Chelsea.