Guardiola samdi til 2027

Pep Guardiola verður áfram hjá Manchester City.
Pep Guardiola verður áfram hjá Manchester City. AFP/Paul Ellis

Pep Guardiola, knattspyrnustjóri Manchester City, hefur skrifað undir nýjan samning við enska félagið sem gildir út tímabilið 2026-27.

Fyrri samningur Guardiola átti að renna út næsta sumar en Spánverjinn hefur nú skuldbundið sig til tveggja ára til viðbótar.

The Athletic greindi frá því á þriðjudag að hann myndi skrifa undir eins árs samning með möguleika á árs framlengingu en hið rétta er að samningurinn til tveggja ára líkt og kemur fram á heimasíðu Man. City í kvöld.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert