Staðgengill þess besta líka meiddur

Mateo Kovacic verður frá næsta mánuðinn eða svo.
Mateo Kovacic verður frá næsta mánuðinn eða svo. AFP/Oli Scarff

Pep Guardiola, knattspyrnustjóri Manchester City, greindi frá því á fréttamannafundi í dag að miðjumaðurinn Mateo Kovacic hafi komið meiddur til baka úr landsliðsverkefni með Króatíu.

Króatinn hefur tekið að sér hlutverk Rodri, handhafa Gullboltans, í stöðu varnartengiliðar í fjarveru Spánverjans vegna alvarlegra hnémeiðsla, en verður nú sjálfur frá um skeið.

„Kovacic er meiddur. Hann verður frá um skeið, í þrjár vikur eða mánuð,“ sagði Guardiola.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert