Liverpool vann í dag frábæran sigur á nýliðum Southampton í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta, 3:2.
Liverpool komst yfir með marki Dominik Szoboszlai á 30. mínútu en Adam Armstrong jafnaði með marki úr vítaspyrnu á 42. mínútu.
Southampton komst síðan óvænt yfir á 56. mínútu þegar Mateus Fernandes skoraði. Þá tók Mohamed Salah til sinna ráða og skoraði tvívegis. Fyrst með skoti á 65. mínútu og svo sigurmarkið úr vítaspyrnu á 83. mínútu.
Fréttin verður uppfærð.