Arsenal fylgist náið með sænska knattspyrnumanninum Alexander Isak, framherja Newcastle.
SkySports greinir frá en Arsenal hefur verið orðað við marga framherja undanfarin ár.
Isak, sem er 25 ára gamall, gekk í raðir Newcastle sumarið 2022 frá Real Sociedad en hann hefur skorað 40 mörk í 78 leikjum fyrir félagið.
Þá á hann að baki 50 leiki fyrir Svíþjóð þar sem hann hefur skorað 15 mörk.