Gríski knattspyrnumaðurinn Kostas Tsimikas, vinstri bakvörður Liverpool, er að glíma við meiðsli og missir því af stórum leikjum á næstunni.
Tsimikas meiddist á ökkla á æfingu í síðustu viku og missti af þeim sökum af leik gegn Southampton í ensku úrvalsdeildinni á sunnudag.
The Times greinir frá því að Grikkinn verði ekki lengi frá en megi eiga von á því að missa af að minnsta kosti tveimur stórleikjum, gegn Real Madríd í Meistaradeild Evrópu annað kvöld og Manchester City næstkomandi sunnudag.