Guardiola biðst afsökunar

Pep Guardiola, knattspyrnustjóri karlaliðs Manchester City.
Pep Guardiola, knattspyrnustjóri karlaliðs Manchester City. AFP/Paul Ellis

Pep Guardiola, knattspyrnustjóri karlaliðs Englandsmeistara Manchester City, hefur beðist afsökunar á ummælum sem hann lét falla á blaðamannafundi í gærkvöldi. 

Guardiola sat fyrir svörum eftir að lið hans tapaði niður þriggja marka forskoti gegn Feyenoord frá Hollandi í Meistaradeild Evrópu en leiknum lauk með 3:3-jafntefli. 

Guardiola var útklóraður eftir leik og sagðist hafa sjálfur klórað sig því hann vildi „meiða sig.“

Ætlaði ekki að gera lítið úr málefninu

Guardiola baðst afsökunar á ummælunum á X-síðu sinni og sagðist ekki ætla hafa gert lítið úr eins alvarlegu máli og sjálfskaða. 

Embætti land­lækn­is bend­ir á að mik­il­vægt sé að þeir sem glíma við sjálfs­vígs­hugs­an­ir segi ein­hverj­um frá líðan sinni, hvort sem er aðstand­anda eða hafi sam­band við Hjálp­arsíma Rauða kross-ins 1717, eða á net­spjalli 1717.is, við hjúkr­un­ar­fræðing í net­spjalli á heilsu­vera.is eða við ráðgjafa í síma Píeta-sam­tak­anna s. 552-2218. Píeta-sam­tök­in bjóða einnig upp á ráðgjöf og stuðning fyr­ir aðstand­end­ur þeirra sem glíma við sjálfs­vígs­hugs­an­ir.

Fyr­ir þau sem misst hafa ást­vin í sjálfs­vígi bend­ir land­læknisembættið á stuðning í sorg hjá Sorg-armiðstöðinni í síma 551-4141 og hjá Píeta-sam­tök­un­um í síma 552-2218.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka