Leeds sendir frá sér yfirlýsingu

Leeds sendi frá sér yfirlýsingu í dag.
Leeds sendi frá sér yfirlýsingu í dag. AFP/Oli Scarff

Enska knattspyrnufélagið Leeds sendi frá sér yfirlýsingu fyrr í dag í tengslum við mál dómarans Davids Cootes. 

Coote, sem hefur lent í miklum vandræðum undanfarið, var samkvæmt The Sun beðinn um að gefa Ezgjan Alioski, þáverandi leikmanni Leeds, gult spjald af félaga sínum í leik Leeds gegn West Brom í ensku B-deildinni árið 2019. 

Alioski fékk gult spjald á 18. mínútu leiksins. Coote á að hafa sent á félaga sinn eftir leikinn: 

„Ég vona að þú hafir veðjað á það sem við töluðum um.“ Félaginn sagðist hins vegar ekki hafa gert það. 

Coote hagnaðist ekki sjálf­ur á at­vik­inu og hafn­ar enska dóm­ara­sam­bandið því að Coote hafi spjaldið leik­mann­inn vilj­andi.

Fulla trú á sambandinu

Leeds sendi frá sér yfirlýsingu út af málinu í dag. 

„Við erum meðvituð um ásakanirnar en virðum og berum fullt traust til enska knattspyrnusambandsins, B-deildarinnar og dómarasambandsins. 

Við munum ekki gera frekari athugasemdir að svo stöddu,“ kom fram í yfirlýsingu Leeds. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka