Varnarmennirnir Harry Maguire og Lisandro Martínez eru mættir til æfinga fyrir leik Manchester United gegn norska liðinu Bodö/Glimt í Evrópudeildinni í knattspyrnu annað kvöld.
Maguire og Martínez voru báðir fjarverandi í jafnteflinu gegn Ipswich, 1:1, í ensku úrvalsdeildinni í fyrsta leik Rúbens Amorims.
Amorim kýs yfirleitt að spila þremur í vörn og er því mikill fengur fyrir hann að fá tvo miðverði til baka.