Tottenham án miðvarðar gegn Úlfunum?

Ange Postecoglou er knattspyrnustjóri Tottenham.
Ange Postecoglou er knattspyrnustjóri Tottenham. AFP/Glyn Kirk

Enska úrvalsdeildarfélagið Tottenham verður mögulega án miðvarðar þegar liðið mætir Wolves næstkomandi sunnudag.

Radu Dragușin meiddist í 1:0-tapi liðsins gegn Nottingham Forest í síðasta leik en hann myndaði miðvarðarpar Tottenham í leiknum ásamt 18 ára miðjumanninum Archie Gray.

Óvíst er hvort Dragușin geti spilað og Ben Davies fékk bakslag í sínum meiðslum en hann er nálægt því að spila.

Miðverðirnir Micky van de Ven og Cristian Romero eru einnig að glíma við meiðsli.

Auk þeirra verður varnarmaðurinn Djed Spence í leikbanni en hann fékk rautt spjald gegn Forest. Aðalmarkmaður Tottenham, Guglielmo Vicario, er ökklabrotinn og verður frá þar til í mars.

„Það hafa komið upp meiðslavandamál en aldrei af þessum skala. Það hefur vantað í kringum tíu byrjunarliðsleikmenn hjá okkur í smá tíma,“ sagði Ange Postecoglou, knattspyrnustjóri Tottenham.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert