„Við höfum séð Martínez kveikja í leikjum með tæklingum en í dag kveikti hann í leiknum með marki,“ sagði Eiður Smári Guðjohnsen sem var gestur hjá Herði Magnússyni í Vellinum á Símanum Sport í kvöld.
Lisandro Martínez kom Manchester United 1:0 yfir gegn Liverpool þegar liðin gerðu 2:2-jafntefli á Anfield í dag.
Hörður var ósáttur með varnarleik Trent Alexanders-Arnolds en umræðuna má sjá í spilaranum hér að ofan.