Spánverjanum Julen Lopetegui hefur verið sagt upp störfum sem knattspyrnustjóra West Ham, samkvæmt nokkrum enskum fjölmiðlum.
Talksport segir að stjórn West Ham hafi ákveðið fyrr í dag að segja Lopetegui upp og allt bendi til þess að Graham Potter verði ráðinn í hans stað.
West Ham hefur gengið illa á yfirstandandi tímabili og er í fjórtánda sæti úrvalsdeildarinnar. Liðið fékk skelli gegn Liverpool og Manchester City um jólin og það er sagt hafa gert útslagið.
Lopetegui var ráðinn til West Ham í maí 2024 og stýrði því liðinu aðeins í ríflega sjö mánuði. Áður var hann stjóri Wolves, Sevilla, Real Madrid og Porto, og var um skeið þjálfari spænska karlalandsliðsins.
Graham Potter hefur verið án starfs síðan í apríl 2023 þegar honum var sagt upp hjá Chelsea en hann var áður í þrjú ár með Brighton í úrvalsdeildinni.
Uppfært:
Aðrir enskir miðlar, m.a. Sky Sports, segja að endanleg ákvörðun um brottreksturinn hafi ekki verið tekin en ljóst sé að þolinmæði West Ham sé á þrotum og Potter sé mjög líklegur eftirmaður Spánverjans.