Van Dijk: Þetta var óásættanlegt

Virgil van Dijk kemur í veg fyrir skot hjá Diogo …
Virgil van Dijk kemur í veg fyrir skot hjá Diogo Dalot í gærkvöldi. AFP/Darren Staples

Virgil van Dijk, fyrirliði Liverpool, var ekki sáttur við hvernig liðið varðist þegar það fékk á sig mörkin tvö í jafntefli gegn erkifjendunum í Manchester United í ensku úrvalsdeildinni á Anfield í gærkvöldi.

„Hvernig við fengum bæði mörkin á okkur var óásættanlegt og markaðist af leti. Þetta á ekki að gerast. Ég held við verðum að vera hreinskilnir við okkur sjálfa, þetta hefði getað verið enn verra ef þeir hefðu nýtt síðasta færið sitt,“ sagði van Dijk í viðtali á samfélagsmiðlum deildarinnar.

Leiknum lauk 2:2 þar sem öll mörkin komu í síðari hálfleik. Man. United náði forystunni, Liverpool sneri taflinu við en gestirnir jöfnuðu svo metin.

„Þetta var leikur sem var uppfullur af tilfinningum. Við lentum 0:1 undir, gerðum frábærlega í að snúa taflinu við og svo hefðum við átt að stjórna leiknum miklu betur.

Við vorum slakari en oft áður og misstum boltann á erfiðum stöðum þar sem við vorum opnari. Svo fáum við á okkur annað markið og það voru mikil vonbrigði hversu auðveldlega það fór í netið.

Við verðum að taka þessu og leggja hart að okkur eins og við höfum gert allt tímabilið og einbeita okkur að næsta leik,“ bætti hollenski miðvörðurinn við.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert