Liverpool-slagnum loks fundinn leiktími

Everton og Liverpool mætast í miðri viku í febrúar.
Everton og Liverpool mætast í miðri viku í febrúar. AFP/Paul Ellis

Nágrannaslag Everton og Liverpool á Goodison Park í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu karla hefur verið fundinn nýr leiktími eftir að leiknum, sem átti að fara fram 7. desember síðastliðinn, var frestað vegna stormsins Darragh.

Nýr leiktími er klukkan 19.30 miðvikudaginn 12. febrúar næstkomandi.

Líklegast þótti að leikurinn færi fram í febrúar og nú hefur enska úrvalsdeildin staðfest að svo sé.

Dragist liðin ekki saman á síðari stigum ensku bikarkeppninnar verður um síðasta Liverpool-slag sögunnar sem fer fram á Goodison Park að ræða en Everton flytur á nýjan leikvang við Bramley Moore höfnina að yfirstandandi tímabili loknu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert