Renée Slegers hefur verið ráðin knattspyrnustjóri kvennaliðs Arsenal og skrifaði hún undir eins og hálfs árs samning við félagið.
Þetta tilkynnti félagið á samfélagsmiðlum sínum en Slegers, sem er einungis 35 ára gömul, var ráðin tímabundinn stjóri liðsins í október á síðasta ári þegar Jonas Eidevall sagði starfi sínu lausu en Slegers var ráðin aðstoðarþjálfari Eidevall hjá félaginu í september árið 2023.
Gengi Arsenal undir stjórn Slegers hefur verið mjög gott en liðið hefur unnið tíu leiki og gert eitt jafntefli í öllum keppnum frá því að hún tók við stjórnartaumunum hjá félaginu.
Slegers lék með Willem II, Djurgården og Linköping á leikmannaferlinum og þá lék hún 55 A-landsleiki fyrir Holland á árunum 2009 til 2016. Hún lagði skóna á hilluna vegna þrálátra hnémeiðsla árið 2018.
Arsenal situr sem stendur í þriðja sæti ensku úrvalsdeildarinnar með 21 stig, sjö stigum minna en topplið Chelsea.