Franski knattspyrnumaðurinn Alex Disasi er að ganga til liðs við enska úrvalsdeildarfélagið Aston Villa.
Það er ítalski félagaskiptasérfræðingurinn Fabrizio Romano sem greinir frá þessu en Disasi, sem er 26 ára gamall, er samningsbundinn Chelsea í ensku úrvalsdeildinni.
Hann gekk til liðs við Chelsea frá Monaco, sumarið 2023, fyrir 38,5 milljónir punda en hefur aldrei náð að sýna sitt rétta andlit í Lundúnum.
Alls á hann að baki 61 leik fyrir Chelsea þar sem hann hefur skorað fimm mörk en Disasi hefur nú þegar náð munnlegu samkomulagi við forráðamenn Aston Villa.
Aston Villa á hins vegar enn þá eftir að ná samkomulagi við forráðamenn Chelsea um kaupverðið á miðverðinum.