Ensku dómarasamtökin rannsaka nú líflátshótanir og aðrar hótanir sem beint var að Michael Oliver eftir leik Wolves og Arsenal í 23. umferð ensku úrvalsdeildarinnar sem fram fór í Wolverhampton á laugardaginn síðasta.
Leiknum lauk með naumum sigri Arsenal, 1:0, þar sem Riccardo Calafiori skoraði sigurmark leiksins seint í síðari hálfleik.
https://www.mbl.is/sport/enski/2025/01/25/umdeilt_rautt_spjald_myndskeid/
Stuðningsmenn Arsenal voru allt annað en sáttir með Oliver eftir að hann rak Myles Lewis-Skelly af velli undir lok fyrri hálfleiks og hótuðu meðal annars að uppljóstra um heimilisfang dómarans.
„Enginn dómari á að þurfa að þola ofsóknir fyrir að vinna vinnuna sína,“ segir í yfirlýsingu dómarasamtakanna.
„Svona hegðun er algjörlega óásættanleg og við stöndum þétt við bakið á Michael Oliver,“ segir ennfremur í yfirlýsingunni.