Van Dijk: „Kannski fæ ég mér rauðvínsglas“

Virgil van Dijk.
Virgil van Dijk. AFP/Paul Ellis

Hollenski knattspyrnumaðurinn Virgil dan Dijk lék sinn 300. leik fyrir enska úrvalsdeildarfélagið Liverpool um helgina.

Van Dijk, sem er 33 ára gamall og fyrirliði liðsins, var á sínum stað í hjarta varnarinnar þegar Liverpool vann öruggan sigur gegn Ipswich, 4:1, á Anfield.

Van Dijk gekk til liðs við Liverpool frá Southampton í janúar árið 2018 fyrir 75 milljónir punda en hann hefur unnið allt sem hægt er að vinna sem leikmaður með félaginu.

Næsti leikur

Miðvörðurinn var spurður út í leikjafjölda sinn með Liverpool eftir leikinn gegn Ipswich en Liverpool er með sex stiga forskot á toppi úrvalsdeildarinnar og á leik til góða á Arsenal sem er í öðru sætinu.

„Kannski fær maður sér rauðvinsglas með konunni í tilefni áfangans,“ sagði van Dijk við fjölmiðla.

„Það verður ekki mikið meira en það. Það er bara næsti leikur. Það kemur að því að ég mun fara yfir allt það sem hefur á daga mína drifið hjá Liverpool,“ bætti van Dijk við.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert