Jón Daði Böðvarsson virðist ætla að reynast enska liðinu Burton Albion heldur betur dýrmætur en hann skoraði í kvöld sitt fjórða mark fyrir liðið í jafnmörgum leikjum í ensku C-deildinni í knattspyrnu.
Jón Daði skoraði annað mark liðsins í góðum heimasigri á Reading í kvöld, 3:2, en hann kom Burton í 2:0 á 29. mínútu leiksins.
Reading náði að jafna í síðari hálfleik og Jón Daði fór af velli á 82. mínútu en Rumarn Burrell skoraði dramatískt sigurmark fyrir Burton í uppbótartíma leiksins.
Burton hefur heldur betur bætt stöðu sína eftir að Jón Daði kom fyrr í þessum mánuði en það hefur nú fengið sjö stig í síðustu þremur leikjunum og er aðeins þremur stigum frá því að komast úr fallsæti. Liðið er í 21. sæti af 24 liðum en fjögur neðstu liðin falla.