Arsenal vann áfrýjunina

Myles Lewis-Skelly þarf ekki að taka út þriggja leikja bann.
Myles Lewis-Skelly þarf ekki að taka út þriggja leikja bann. AFP/Darren Staples

Þriggja manna nefnd sem enska knattspyrnusambandið skipaði hefur fallist á skýringar Arsenal í áfrýjun félagsins vegna rauða spjaldsins sem Myles Lewis-Skelly fékk í 1:0-sigri á Wolves í ensku úrvalsdeildinni um síðustu helgi.

Lewis-Skelly, sem fékk beint rautt spjald undir lok fyrri hálfleiks fyrir að stöðva skyndisókn rétt fyrir framan vítateig Úlfanna, sleppur því við að fara í þriggja leikja bann.

Dómarinn Michael Oliver mat það sem svo að Lewis-Skelly hefði gerst sekur um grófan leik og VAR-dómarinn Darren England staðfesti ákvörðunina.

Enska knattspyrnusambandið og Arsenal tilkynntu hins vegar í gær að áfrýjun félagsins hafi verið samþykkt og því fari Lewis-Skelly ekki í leikbann.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert