Arne Slot, knattspyrnustjóri Liverpool, segir að fyrirliðinn og landi hans frá Hollandi, Virgil van Dijk, hafi komið sér á óvart eftir að hann tók við liðinu af Jürgen Klopp síðasta sumar.
Van Dijk, sem er 33 ára gamall, hefur leikið með Liverpool í átta ár og sett mikinn svip sinn á liðið en með því hefur hann orðið enskur meistari, unnið Meistaradeildina, ensku bikarkeppnina, deildabikarinn, heimsbikar félagsliða og meistarakeppni Evrópu.
Nú er lið Liverpool, með hollenska varnarmanninn í lykilhlutverki, með góða forystu í ensku úrvalsdeildinni og á toppi Meistaradeildarinnar.
„Hér á Englandi segja allir að Virgil van Dijk sé besti varnarmaður heims,“ sagði Slot í viðtali við Gary Lineker í þættinum Football Focus á BBC.
„Í Hollandi er hann gagnrýndur heldur meira en hér á Englandi. Þegar ég kom hingað var ég, á mjög jákvæðan hátt, undrandi á hversu góður hann er með boltann og hvernig hann getur spilað í gegnum línurnar.
Frá fyrsta degi fannst mér hann vera á annarri bylgjulengd en ég hef átt að venjast. En á Englandi eru allir orðnir vanir þessu,“ sagði Slot.