Enska knattspyrnusambandið hefur kært Arsenal fyrir slæma hegðun leikmanna í kjölfar þess að dómarinn Michael Oliver gaf Myles Lewis-Skelly beint rautt spjald í 1:0-sigri á Wolves í ensku úrvalsdeildinni síðastliðinn laugardag.
Leikmenn Arsenal umkringdu Oliver og mótmæltu hástöfum. Dómaranum var ekki haggað og VAR-dómarinn Darren England staðfesti dóm Olivers.
Félagið áfrýjaði rauða spjaldinu og féllst nefnd á vegum enska knattspyrnusambandsins á skýringar Arsenal og felldi þriggja leikja bann Lewis-Skelly úr gildi.
Í tilkynningu frá sambandinu segir að Arsenal hafi mistekist að sjá til þess að leikmenn hegðuðu sér ekki á óviðeigandi hátt.
Félagið hefur til 3. febrúar til þess að bregðast við kærunni.