Gerrard orðinn atvinnulaus

Steven Gerrard er án starfs.
Steven Gerrard er án starfs. AFP

Steven Gerrard, goðsögn enska knattspyrnufélagsins Liverpool, er orðinn atvinnulaus eftir að Al-Ettifaq í Sádi-Arabíu sagði upp samningi hans.

Gerrard tók við Al-Ettifaq sumarið 2023 en gengi liðsins á yfirstandandi tímabili hefur verið undir væntingum. Er liðið aðeins með fimm sigra í sautján leikjum og fimm stigum fyrir ofan fallsæti.  

Hinn 44 ára gamli Gerrard hóf þjálfaraferilinn hjá Rangers í Skotlandi og náði þar góðum árangri. Töluvert verr gekk hjá Aston Villa og fór hann til Al-Ettifaq í kjölfarið en þar var gengið lítið skárra.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert