Belgíski knattspyrnumaðurinn Orel Mangala, miðjumaður Everton, er með slitið krossband í hné og leikur því ekki meira með liðinu á tímabilinu.
Mangala er að láni hjá Everton frá franska félaginu Lyon og hefur verið lykilmaður hjá liðinu á yfirstandandi tímabili, þar sem hann skoraði eitt mark í 19 leikjum í ensku úrvalsdeildinni.
The Times greinir frá því að varnartengiliðurinn megi eiga von á því að vera frá keppni næstu sex til átta mánuði vegna meiðslanna og þar með er ljóst að Mangala spilar ekki meira fyrir Everton.
Enskir miðlar greina þá frá því að sóknarmaðurinn Dominic Calvert-Lewin sé einnig kominn á meiðslalistann. Hann glími við meiðsli aftan í læri og verður af þeim sökum frá keppni í nokkrar vikur.