Bæði félög sektuð

Jason Tindall fékk rautt spjald en var ekki gerð frekari …
Jason Tindall fékk rautt spjald en var ekki gerð frekari refsing. AFP/Adrian Dennis

Enska knattspyrnusambandið hefur ákveðið að sekta Aston Villa um 30 þúsund pund og Newcastle United um 20 þúsund pund vegna óláta í hálfleik í leik liðanna í ensku úrvalsdeildinni á öðrum degi jóla.

Í hálfleik sauð upp úr þegar kastaðist í kekki milli Jasons Tindalls, aðstoðarþjálfara Newcastle, og Victor Manas, leikgreinanda hjá Villa.

Tindall og Manas fengu báðir rautt spjald fyrir sinn þátt í látunum.

Bæði félögin játuðu sök líkt og Manas en Tindall neitaði sök. Félögin voru því sektuð, Manas fær tveggja leikja bann og 4.000 punda sekt en Tindall sleppur við frekari refsingu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert