Arne Slot, knattspyrnustjóri Liverpool, færði stuðningsmönnum gleðifregnir af leikmönnum sem hafa verið frá vegna meiðsla að undanförnu.
Diogo Jota, Joe Gomez og Darwin Núnez munu allir æfa með liðinu í dag. Liverpool heimsækir Bournemouth í ensku úrvalsdeildinni á morgun.
Jota hefur verið frá undanfarnar tvær vikur, Gomez undanfarinn mánuð og Núnez varð fyrir smávægilegum meiðslum í vikunni og missti af þeim sökum af leik gegn PSV Eindhoven í Meistaradeild Evrópu á miðvikudag.
„Allir þrír æfa í dag. Spurningin er hvort þeir séu nægilega tilbúnir til þess að vera með okkur gegn Bournemouth.
Við þurfum að bíða og sjá hvernig það verður því við erum líklega með meira en 20 leikmenn klára í slaginn, þannig að við verðum að taka skynsamlegustu ákvörðunina fyrir þá en einnig til þess að vinna leikinn á morgun,“ sagði Slot.