Enzo Maresca, knattspyrnustjóri Chelsea, viðurkennir að hann eigi eftir að ákveða hvort Robert Sánchez haldi sæti sínu í marki liðsins eða varamarkvörðurinn Filip Jörgensen fái tækifærið í byrjunarliðinu þegar West Ham United kemur í heimsókn í ensku úrvalsdeildinni á mánudagskvöld.
Sánchez hefur verið aðalmarkvörður Chelsea á tímabilinu en hefur alls fimm sinnum gerst sekur um mistök sem hafa með beinum hætti leitt til marks andstæðinganna.
Á fréttamannafundi í dag var Maresca spurður hvort hann væri búinn að taka ákvörðun um hvort Sánchez eða Jörgensen myndi byrja gegn West Ham.
„Ekki ennþá. Við höfum tvo eða þrjá daga til þess að taka ákvörðun. Það góða við þetta er að hvaða ákvörðun sem ég tek þá líður mér vel með hana því í hvert skipti sem Filip hefur spilað hefur hann staðið sig vel.
Við sjáum til hvort Filip eða Robert muni byrja en hvaða ákvörðun sem ég tek þá verður það í lagi,“ sagði Maresca á fundinum.