Villa vill Rashford

Marcus Rashford hefur ekkert spilað með Manchester United síðustu sjö …
Marcus Rashford hefur ekkert spilað með Manchester United síðustu sjö vikur. AFP/Darren Staples

Enska úrvalsdeildarfélagið Aston Villa hefur áhuga á því að fá enska sóknarmanninn Marcus Rashford frá Manchester United.

Samkvæmt Sky Sports vill félagið fá Rashford á láni en John Duran fór frá Villa til Al Nassr á dögunum og félagið vill fá 27 ára gamla Rashford í hans stað.

Það eru sjö vikur frá síðasta leik Rashford með United og hann hefur sjálfur sagt að hann sé tilbúinn yfirgefa félagið.

Villa hefur einnig áhuga á því að fá Joao Félix sem spilar með Chelsea og Marcos Asensio sem spilar með París SG í Frakklandi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert