Chelsea kallar leikmann til baka

David Datro Fofana í leik með Burnley á síðustu leiktíð.
David Datro Fofana í leik með Burnley á síðustu leiktíð. AFP/Ian Hodgson

Enska knattspyrnufélagið Chelsea hefur ákveðið að kalla til baka Fílabeinstrendinginn David Datro Fofana úr láni frá tyrkneska félaginu Göztepe. 

Fofana lék aðeins níu leiki fyrir Göztepe í tyrkneska úrvalsdeildinni á tímabilinu og skoraði tvö mörk. Hann meiddist í byrjun desemer og hefur ekki spilað síðan. 

Fofana var keyptur af Chelsea frá Molde í janúar 2023 en síðan þá hefur hann farið á lán til Union Berlín og Burnley. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert