Faðir Haalands skaut á Arsenal

Erling Haaland eftir tapið í gærkvöldi.
Erling Haaland eftir tapið í gærkvöldi. AFP/Glyn Kirk

Alfie Haaland, faðir Erlings Haalands, skaut föstum skotum á Arsenal eftir að liðið hafði betur gegn Manchester City, 5:1, í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í gærkvöldi.

Erling skoraði mark Man. City en var mikið tekinn fyrir af leikmönnum Arsenal. Þar fór fremstur í flokki Gabriel sem fagnaði fyrsta marki Arsenal til að mynda með því að hlæja framan í sóknarmanninn.

Myles Lewis-Skelly fagnaði svo marki sínu með því að vísa til hugleiðslufagns Haalands.

Eftir leikinn birti Arsenal færslu á X-aðgangi sínum þar sem stóð einfaldlega: „Þetta lið.“

Alfie, sem sjálfur lék með Man. City á sínum tíma, brást við með því að skrifa á X-aðgangi sínum: „„Þetta lið” sem vinnur allt. Ehhhhh, ekki.“

Vísaði hann þar til þess að Arsenal vann síðast stóran titil árið 2020.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert