Frá Newcastle til Juventus

Lloyd Kelly, t.h., í baráttunni í enska bikarnum.
Lloyd Kelly, t.h., í baráttunni í enska bikarnum. AFP/Andy Buchanan

Enski knattspyrnumaðurinn Lloyd Kelly er farinn frá Newcastle og genginn til liðs við Juventus á Ítalíu. 

Kelly, sem er bakvörður, fer á láni en Juventus mun síðan kaupa hann í sumar. 

Bakvörðurinn var aðeins hjá Newcastle í sex mánuði en hann gekk í raðir félagsins frá Bournemouth síðasta sumar. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert