Mikið áfall fyrir Manchester United

Lisandro Martínez sárþjáður í gær.
Lisandro Martínez sárþjáður í gær. AFP/Paul Ellis

Argentínski knattspyrnumaðurinn Lisandro Martínez, varnarmaður Manchester United, er með slitið krossband og verður frá út tímabilið og langt inn í næsta. 

Frá þessu segir argentínski blaðamaðurinn Gastón Edul en Martínez meiddist í tapi United fyrir Crystal Palace, 2:0, í ensku úrvalsdeildinni í gær. 

Martínez fór í kjölfarið út af á börum og er nú staðfest að hann sé með slitið krossband. Hann mun vera frá í að minnsta kosti níu mánuði. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert