Leeds með fimm stiga forskot

Jayden Bogle fagnar marki sínu í kvöld.
Jayden Bogle fagnar marki sínu í kvöld. Ljósmynd/Leeds United

Leeds náði fimm stiga forskoti á toppi ensku B-deildarinnar í fótbolta í kvöld með útisigri á Coventry, 2:0.

Joel Piroe kom Leeds yfir á 17. mínútu og Jayden Bogle bætti við öðru marki á 26. mínútu og urðu mörkin ekki fleiri.

Leeds er með 66 stig í toppsætinu, fimm stigum á undan Burnley og Sheffield United, sem féllu saman úr úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð. Sheffield-liðið á leik til góða.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert