Hræðileg tölfræði Liverpool-mannsins

Federico Chiesa liggur í grasinu í dag.
Federico Chiesa liggur í grasinu í dag. AFP/Henry Nicholls

Ítalinn Federico Chiesa átti afleitan leik í tapi Liverpool fyrir botnliði B-deildarinnar Plymouth Argyle, 1:0, í 4. umferð ensku bikarkeppninnar í fótbolta í Plymouth í dag. 

Plymouth henti Liverpool mjög óvænt úr keppni en Liverpool-liðið hvíldi sína helstu leikmenn og fékk það í bakið. 

Chiesa, sem kom til Liverpool á láni frá Juventus í sumar, lék allan leikinn. Hann náði að leika á mótherja í eitt af tíu skiptum, tapaði boltanum 29 sinnum og var aðeins með eina heppnaða fyrirgjöf. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert