Mílu­­deildin er stærsta Val­orant-mótið frá upp­­hafi

Jökull Jóhannsson, framkvæmdastjóri RÍSÍ, Ingvar Bjarnason frá Mílu, Mist Reyk­dal …
Jökull Jóhannsson, framkvæmdastjóri RÍSÍ, Ingvar Bjarnason frá Mílu, Mist Reyk­dal Magnús­dóttir mótastjóri og Sonja Björk Frehsmann frá Mílu.

Á­huginn á Mílu­­deildinni í Val­orant hefur aldrei verið meiri en nú þegar 50 konur eru skráðar til leiks og átta lið takast á í einu kvenna­­deild landsins í raf­­í­­þróttum.

„Míludeildin í ár er stærsta Val­orant-mót sem hefur verið haldið á Íslandi hingað til og þetta gengur rosalega vel,“ segir Daníel Máni Óskars­son móta­stjóri um deildina sem kennd er við aðalbakhjarlinn, Mílu.

Valorant hefur fest sig í sessi sem einn vinsælasti tölvuleikur heims og Ísland er þar engin undantekning en mánaðarlega eru spilarar út um allan heim á bilinu 16 til 20 milljónir.

Mótastjórinn Mist Reyk­dal Magnús­dóttir segir að þegar fjórar umferðir séu að baki sé ljóst að keppnin fram undan verði æsispennandi enda til mikils að vinna því verðlaunaféð nemi samanlagt 1,5 milljónum króna. Hún bendir á að slíkar verðlaunaupphæðir séu sjaldséðar og ekki þurfi að hafa mörg orð um hversu jákvætt þetta sé fyrir rafíþróttir kvenna.

Valorant hefur fest sig í sessi sem einn vinsælasti tölvuleikur …
Valorant hefur fest sig í sessi sem einn vinsælasti tölvuleikur heims og Ísland er þar engin undantekning.

Ingvar Bjarnason, hjá Mílu, segir sérstaklega ánægjulegt að fá þetta tækifæri til að styðja við einu kvennadeildina í rafíþróttum á Íslandi, enda hafi Míla sett sér metnaðarfull markmið um að gegna samfélagslegri ábyrgð í samræmi við Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna þar sem meðal annars sé lögð áhersla á jafnrétti kynjanna.

SÞ leggja einnig í markmiðum sínum áherslu á heilsu og vellíðan og þar sé stuðningur við keppni í Valorant einnig skemmtilegur kostur því leikurinn njóti ekki síst mikilla vinsælda hjá yngri spilurum og áhersla Rafíþróttasambands Íslands á félagslega þáttinn og hreyfingu í rafíþróttaiðkun barna og unglinga stuðli einmitt einnig að aukinni vellíðan og bættri líkamlegri- og andlegri heilsu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert