Guðjón Þórðarson hefur verið ráðinn þjálfari karlaliðs BÍ/Bolungarvík í knattspyrnu. Samúel Samúelsson stjórnarmaður í knattspyrnudeild félagsins staðfesti þetta í samtali við mbl.is. Samningurinn er ótímabundinn en hann tekur gildi þann 15. þessa mánaðar.
Guðjón mun taka við starfi Alfreðs Elísar Jóhannssonar en undir hans stjórn hafnaði liðið í öðru sæti 2. deildarinnar í sumar og leikur í 1. deild á næsta tímabili.
Guðjón hefur á síðustu dögum verið sterklega orðaður við
þjálfarastarfið hjá KA og átti hann viðræður við forráðamenn félagsins
um helgina.