Dagur Dan Þórhallsson skoraði í 4:2 tapi Orlando City gegn New York City í bandarísku MLS-deildinni í knattspyrnu í nótt.
Dagur var í byrjunarliði Orlando en liðið fékk á sig þrjú mörk í fyrri hálfleik. Dagur minnkaði muninn fyrir Orlando í 72. mínútu með skallamarki eftir stoðsendingu frá Martin Ojeda. Duncan McGuire skoraði svo annað mark Orlando á annarri mínútu uppbótartímans en Monef Bakrar skoraði fjórða mark New York tveimur mínútum síðar og lokastaðan 4:2
Thorhallsson heads it home and @OrlandoCitySC pulls one back! pic.twitter.com/e39Ohx2hTA
— Major League Soccer (@MLS) June 29, 2024
Orlando er í 10. sæti Austurdeildar með 21 stig, jafn mörg og Atlanta í sætinu fyrir ofan sem er umspilssæti. New York er í fjórða sæti með 32 stig.
Þetta er annað mark Dags í deildinni á þessu tímabili en hann hefur spilað alla 20 leiki Orlando, 18 þeirra í byrjunarliði.