Nökkvi Þórisson skoraði þriðja mark St. Louis City í 4:3 tapi á útivelli gegn Vancouver Whitecaps í MSL deildinni í nótt. Nökkvi lék allan leikinn í fremstu víglínu gestanna.
Brian White skoraði þrennu fyrir Whitecaps og sneri stöðunni úr 0:2 í 3:2 eftir að Njabulo Blom og Eduard Löwen höfðu skorað fyrir St. Louis. Fabrice Picault kom Vancouver í 4:2 áður en Nökkvi klóraði í bakkann.
Nökkvi Thórisson pulls one back for @stlCITYsc. pic.twitter.com/EWmdNG73H0
— Major League Soccer (@MLS) June 30, 2024