Knattspyrnumaðurinn Andri Fannar Baldursson verður hjá sænska félaginu Elfsborg út tímabilið.
Andri Fannar er á láni frá ítalska A-deildarfélaginu Bologna. Hann gekk til liðs við sænska félagið í ágúst í fyrra og hefur staðið sig með prýði.
Bologna vildi upphaflega að Andri yrði ekki lengur í Svíþjóð en eftir viðræður komust liðin að samkomulagi, eða svo kemur fram í frétt Expressen í Svíþjóð.
Elfsborg hafnaði í öðru sæti sænsku úrvalsdeildarinnar í fyrra en er nú í níunda sæti eftir 13 leiki.