Fær loksins að fara til Bayern

Joao Palhinha í leik gegn Liverpool á siðustu leiktíð.
Joao Palhinha í leik gegn Liverpool á siðustu leiktíð. AFP/Paul Ellis

Knattspyrnumaðurinn Joao Palhinha er á förum frá enska úrvalsdeildarliðinu Fulham til þýska stórveldisins Bayern München.

Palhinha er 28 ára varnatengiliður og var í lykilhlutverki þegar Portúgal tryggði sæti í 16-liða úrslitum á EM í gær. 

Árið 2023 var hann mjög nálægt því að fara í Bayern en það heppnaðist ekki á lokadegi félagsskiptagluggans en nú virðist allt ætla að ganga upp. Félagið fær metfé fyrir hann en Bayern greiðir 43,2 milljónir punda fyrir Portúgalann samkvæmt Sky en Fulham hefur aldrei fengið jafn mikið fyrir leikmann.

Palhinha spilaði 79 leiki fyrir Fulham og skoraði átta mörk en hann kom til liðsins árið 2022 frá Sporting Lisbon.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert